NV NE SV SE

Bryggjurúnturinn

Þá er maður búinn að fara sinn daglega bryggjurúnt. Þeir eru reyndar nokkrir yfir daginn hjá manni þegar maður er í fríi. Það er vanalega líf við bryggjuna á fimmtudögum en Fossinn kemur hér við á þeim dögum á leið sinni til Englands. Þá koma bátarnir inn og koma fisknum með gámum á markað í Englandi. Það voru nokkrir bátar inni í morgun, t.d. Smáey VE, Þorsteinn ÞH, Jón Vídalín ÞH, Glófaxi VE, Gullberg VE, Narfi VE og Sólborg RE.



Gullberg VE 292. Keyptur hingað til lands frá Ástralíu en er smíðaður í Noregi árið 2000.



Smáey VE 144. Smáey VE er einnig smíðuð árið 2000 en í Kína. Hét upprunalega Björn RE 79. Tengdapabbi minn er kokkur þarna um borð og sést það á mannskapnum enda Gulli með betri sjókokkum sem finnast.



Kallarnir á Narfa VE við trollvinnu í morgun.



Björgvin Sigurjónsson eða Kúti á Háeyri. Kúti var nágranni minn lengi þegar ég var peyji en ég bjó á Skálanesi eða Vesturvegi 13a. Háeyri er á Vesturvegi 11. Kúti er frægastur fyrir að vera hugsuðurinn og aðalsprautan á bakvið Björgvinsbeltið sem er sennilega um borð í öllum Íslenskum bátum í dag og hefur margsannað sig. Hann þótti einnig liðtækur á trommurnar hér í den en í dag er hann skipstjóri á Narfa VE sem gerir út á humar um þessar mundir.

Skrifa athugasemd

 

Blogg

Hér hafa bloggarar vettvang til að láta ljós sitt skína. Allir nánari uppýsingar á mar@mar.is.