17.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Sýningin MATUR-INN 2011 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 1. og 2. október nk. Sýningin er vettvangur norðlenskrar matarmenningar í víðri merkingu allt frá frumframleiðendum matvæla til veitinga- og ferðaþjónustufyrirtækja. Sýningin er haldin á tveggja ára fresti og verður aðgangur að henni ókeypis. Síðasta sýning var haldin haustið 2009 og sóttu hana á bilinu 12-14 þúsund gestir. Mikið er lagt upp úr því að sýningin verði fjölbreytt og í boði verður sýningarsvæði fyrir fyrirtæki og félagasamtök auk markaðssvæðis sem kjörið er til þess að selja haustuppskeruna eða annað sem tengist mat og matarmenningu. Á sýningarsvæðinu verða einnig skemmtilegar keppnir og uppákomur sem gestir geta fylgst með.
16.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Þann 31. ágúst lauk 29 daga leiðangri Árna Friðrikssonar sem hafði það markmið að kanna útbreiðslu og magn makríls í íslenskri lögsögu. Þetta er þáttur í sameiginlegum rannsóknum Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga á dreifingu og magni helstu uppsjávartegunda á ætissvæðum í Norðaustur-Atlantshafi og umhverfisaðstæðum þar. Teknar voru 110 togstöðvar, 149 sjórannsóknastöðvar og 100 átustöðvar í leiðangrinum. Alls var 1306 mögum safnað úr síld, makríl og kolmunna til fæðugreiningar, þar af 678 makrílmögum. Hjörtum úr 1638 íslenskum sumargotssíldum var safnað til greiningar á sýkingu sem hrjáð hefur þennan stofn og erfðasýni úr 400 makrílum voru tekin. Úrvinnsla úr gögnum leiðangursins er ekki lokið en helstu niðurstöður þessara rannsókna munu birtast í sameiginlegri skýrslu þeirra aðila sem að leiðangrinum stóðu að loknum fundi í Reykjavík í lok september.
14.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út hefur gefið út reglugerð um um tímabundna friðun vegna rannsókna á hrygningarsvæði steinbíts á Látragrunni. Frá og með 15. september 2011, til og með 15. nóvember 2011 verða allar veiðar bannaðar á rannsóknasvæðinu. Rannsóknarsvæðið sem nú er lokað tímabundið er við hlið friðunarsvæðis sem lokar þann 15. september skv. reglugerð nr. 754/2010. Hafrannsóknastofnunin mun standa fyrir rannsóknarleiðangri til að rannsaka hrygningarsvæði steinbíts. Meðal þess sem fyrirhugað er að skoða er að meta þéttleika hrognaklasa steinbíts á Látagrunni sem metin er með neðansjávarmyndavél.
13.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Washington, áttu á föstudag fundi í Washington með bandaríska utanríkisráðuneytinu og starfsmönnum beggja öldungadeildarþingmanna Alaska, Lisu Murkowski og Mark Begich. Markmiðið með fundunum var að bregðast við útnefningu viðskiptaráðherra Bandaríkjanna á Íslandi samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði vegna hvalveiða í júlí sl. og upplýsa bandarísk stjórnvöld og þingmenn um stefnu Íslands í hvalveiðimálum. Innan skamms mun Bandaríkjaforseti taka afstöðu til útnefningarbréfs viðskiptaráðherrans, en þar var lagt til að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi.
8.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Gefin hefur verið út heimild til íslenska loðnuveiðiskipa á komandi loðnuvertíð til veiða á 181.269 lestum af loðnu. Um er að ræða upphafsheimild sem er nokkru fyrr á ferðinni nú en síðasta vetur þar sem ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir komandi vertíð hefur legið fyrir síðan í júnímánuði sl. Tekið er mið af tilmælum Hafrannsóknastofnunarinnar þegar aflaheimildir íslenskra skipa eru reiknaðar út frá helmingi af ráðlögðum upphafskvóta vertíðarinnar sem er 732.000 lestir. Einnig ráðlagði Hafrannsóknarstofnunin að sumarveiðar á loðnu yrðu ekki leyfðar. Með þetta að leiðarljósi var ákveðið að loðnuveiðar í íslenskri fiskveiðilögsögu standi frá 1. október 2011 til 30. apríl 2012. Einungis skip sem hafa aflamark í loðnu geta stundað veiðarnar.
8.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Íslandsstofa auglýsir eftir þátttöku fyrirtækja á þjóðarbásum Íslands á sjávarútvegs-sýningunum í Brussel dagana 24.-26.apríl 2012. Um er að ræða tvær sýningar, annars vegar European Seafood Exposition (ESE) þar sem fyrirtæki kynna sjávarafurðir, og hins vegar Seafood Processing Europe (SPE) sem er tileinkuð vélaframleiðslu- og þjónustufyrirtækjum. Sameiginlega eru ESE og SPE stærstu sjávarútvegssýningar í heimi þar sem yfir 1.600 fyrirtæki frá um 140 löndum kynna vöru sína og þjónustu fyrir um 30.000 gestum. Í sjávarútvegsumhverfinu er almennt litið á sýningarnar í Brussel sem mikilvægasta vettvanginn til að kynna vörur og þjónustu og er óhætt að segja að flestir lykilmenn í sjávarútvegi í heiminum séu þar samankomnir.
3.9.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Rannsóknaskipið Knorr lagði nú í ágústmánuði 2011 straummælalögnum á Sniði milli Íslands og Grænlands norðan við Grænlandssund. Á sniðinu eru 13 lagnir frá landgrunnsbrún Íslands og yfir á grænlenska landgrunnið. Flestar lagnirnar ná frá botni og upp á 50 - 100metra dýpi. Á hverri lögn eru flot, mælitæki og vír eða reipi ásamt ankeri sem heldur lögninni niðri. Fiskiskip eru beðin um að koma ekki nær lögninni en sem nemur 3 sjómílum. Lagnirnar verða teknir upp í ágúst 2012. Tenglar: Robert Pickart hjá Woods Hole Oceanographic Institution, Woods Hole, Massachusetts, Bandaríkjunum. Sími 001-508-289-2858 og Héðinn Valdimarsson, Hafrannrannsóknastofnuninni, Reykjavík. Sími 575-2000.
30.8.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Fersk íslensk bláskel er sótt í línur fyrirtækisins Íslensk bláskel ehf. í Stykkishólmi vikulega á Breiðafirði til að sinna þörfum markaðarins. Íslensk bláskel (Mytilus edulis) finnst í hafinu í kringum Ísland. Í matarsögu Íslands hefur bláskelin eða kræklingurinn ekki verið nýttur mikið til matar en í Evrópu þykir bláskelin herramannsmatur og hefur verið á borðum manna allt frá 17. öld. Færst hefur í vöxt ræktun bláskelja við Íslandsstrendur undanfarin ár en íslenskur kræklingur hefur þó ekki verið reglulega í boði á veitingahúsum landsins eða í matvöruverslunum. Íslensk bláskel ehf. var stofnað í Stykkishólmi árið 2007 og er að ræða línuræktun sem staðsett er á nokkrum stöðum í Breiðafirði og er ræktunin umhverfisvæn og sjálfbær. Vörur úr beltisþara eru í þróun hjá fyrirtækinu, en mikill áhugi er fyrir afurðum úr honum.
29.8.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða að lögum er það niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að afskrifa 180 milljarða vegna keyptra aflaheimilda. Við það minnkar eigið fé fyrirtækjanna samsvarandi og verður í mörgum tilvikum neikvætt. Þetta segir Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ.
26.8.2011
| Geir A. Guðsteinsson
Meðalstór og smærri fyrirtæki í Grindavík munu njóta forgangs að orku í landi Grindavíkur, framyfir álverið í Helguvík, samkvæmt væntanlegu samkomulagi bæjaryfirvalda við HS Orku. Samþykki Norðuráls liggur fyrir þar að lútandi. Helsta krafa Grindvíkinga í samningum við HS Orku hefur verið sú að tryggja orku til nýrra atvinnutækifæra í sveitarfélaginu. Ekki liggur fyrir hersu mörg megavött er talað um í þessu sambandi enda sé ekki búið að ganga frá samkomulaginu. Eingöngu er kveðið á um að orka frá HS Orku fari til fyrirtækja sem vilja setja upp starfsemi í Grindavík. Nokkur fyrirtæki hafa sett sig í samband við bæjaryfirvöld í Grindavík og óskað eftir orku og lóðum undir starfsemi sína.