NV NE SV SE

Gylfi Þ. Gunnarsson í Grímsey telur gagnrýni á dragnótaveiðar jaðri við ofsóknir

Gylfi Þ. Gunnarsson, útgerðarmaður í Grímsey, segir hugmyndir Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um verndun grunnslóðar vera aðför að dragnótaveiðum allt í kringum landið. Gylfi telur ráðuneytið vera að beina spjótum sínum að veiðum með dragnót þótt nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunarinnar í Skagafirði sýni að áhrif dragnótaveiða á lífríki hafsbotnins séu ekki marktæk. „Ráðherra kaus að skjóta þessari skýrslu undir stól enda var niðurstaða hennar örugglega ekki í þeim anda sem hann hafði vonast eftir,” segir Gylfi, sem sjálfur hefur einmitt stundað dragnótaveiðar fyrir úti Norðurlandi, m.a. í Skagafirði. Í tilkynningu ráðuneytisins er rætt um að setja af stað verkefni þar sem kannaðir yrðu kostir þess að takamarka veiðar „afkastamikilla skipa á grunnslóð.” Gylfi telur grundvöll verkefnisins byggðan á vafasömum forsendum og spyr hvað séu afkastamikil veiðarfæri og við hvað sé þá miðað.

Gylfi segir viðmótið í garð þeirra sem gera út á dragnót gersamlega óþolandi. „Þessi gagnrýni á dragnótaveiðar jaðrar við ofsóknir. Af hverju horfast menn ekki í augu við staðreyndir? Þær eru að 75-80% allra skyndilokana veiðisvæða eru vegna smáfiskadráps krókabáta, ekki vegna veiða í dragnót. “ Hann varpar því fram hvort ekki sé kominn tími til að kanna áhrif þess á lífríkið að hér séu tugþúsundir króka í sjó á grunnslóð allan ársins hring. „Gleymum því ekki að allur þessi smáfiskur sem sem drepinn er með krókaveiðunum nær aldrei að hrygna. Stærstur hluti hans kemur ekki einu sinni fyrir augu eftirlitsmanna, sem grípa ekki til lokana fyrr en þeir fylgjast með löndun á bryggjunni.”