NV NE SV SE

Umtalsvert laxeldi undirbúið í Arnarfirði

Fyrirtækin Þóroddur ehf. og Fjarðarlax ehf. óforma verulegt laxeldi í Arnarfirði og stefna fyrirtækin á um 10.000 tonna framleiðslu á ári og verulegt eldi í fjörðunum Arnarfirði, Tálknafirði og Patreksfirði. Áætlað er  að hefja eldi í Arnarfirði í vor. Á undirbúningsfundi komu fram óskir um að hagsmunaaðilar kæmu sér saman um nýtingu Arnarfjarðar til laxeldis, rækjuveiða, kræklingaeldis, þaraeldis og ferðaþjónustu. Fyrirhugað er að selja laxinn á Bandaríkjamarkaði og flytja hann með skipum frosinn. Jafnframt mun norskt fyrirtæki tengt íslenskum hagsmunaaðilum vera að undirbúa og plana verulegt laxeldi og úrvinnslu laxaafurða á Bíldudal. Líklegt er að þau áform verði kynnt í næsta mánuði.

Fyrir allnokkrum árum voru kynnt áform um laxeldi í Arnarfirði sem áttu að gjörbylta allri atvinnusköpun á svæðinu, flest var orðið klárt og lítið annað en að hefjast handa. Ekki bólaði þó á neinu og áformin lögð á hilluna. Á svipuðum tíma voru áform um Kalkþörungaverksmiðju sem hefur orðið að veruleika. Í kjölfarið voru kynntar hugmyndir um bolfiskvinnslu. Sterkt og gott fyrirtæki hélt kynningafund og áformin voru allgóð, þ.e. gera betur en aðrir. Fyrirtækið starfaði í nokkrar vikur en hætti síðan og áformin lögð á hilluna. Á eftir komu aðilar sem ekki héldi kynningafund en hófu rekstur útgerðar og vinnslu sjávarfangs og starfa enn sem komið er.

 

Olíuhreinsun

 

Svo komu stóriðjuhugmyndir, þ.e. olíuhreinsistöð í Arnarfirði. Hugmyndin þótti tælandi, en stjórnvöld runnu á rassinn, ekki síst vegna þrýstings frá umhverfisstofnunum sem töldu olíuhreinsum hið versta mál, sáu henni allt til foráttu. Það mál er líklega dautt, þó það hefði verið vítamínssprauta í atvinnulíf Vestfirðinga. En hver veit!