Á aðalskipaskrá 1. janúar 2010 voru 2.237 skip
Skipum á íslenskri aðalskipaskrá hefur fækkað um 31 frá árinu 2008. Á árinu 2009 voru frumskráð og endurskráð skip 38 en afskráð skip voru 69. Af afskráðum skipum voru 31 skip seld til útlanda. Þann 1. janúar 2010 voru samtals 1.056 þilfarsskip á skrá og brúttótonnatala þeirra var 209.085. Opnir bátar voru samtals 1.181 og brúttótonnatala þeirra var 7.115. Heildar-brúttótonnatala skipastólsins hefur aukist um 7.436 tonn. Á þurrleiguskrá er eitt skip, Kristina EA-410, 7.682 brúttótonn, sem er flaggað út til Belize.
Aðalsteinn Jónsson SU-111, eitt glæsilegasta
og best búna fiskiskip íslenska flotans. Gert út
af Eskju hf. Er nú á kolmunnaveiðum
suður af Færeyjum.