HAFRÓ leggur til 130 þúsund tonna loðnukvóta
Hafrannsóknastofnunin leggur til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að heimilaðar verði veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu vertíðina 2009/2010. Áætlað er að hrygningarstofn loðnunnar sé 530 þúsund tonn en samkvæmt gildandi reglum er gert ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu ávallt skilin eftir til hrygningar. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur verið við mælingar á stærð loðnustofnsins frá því 5. janúar sl. og aðstoðaði rs. Bjarni Sæmundsson við mælingarnar dagana 5.-12. janúar. Áætluð stærð hrygningarstofns loðnu samkvæmt þeirri mælingu var 355 þúsund tonn. Ekki náðist þó að kanna allt fyrirhugað leitarsvæði sökum íss sem var fyrir vestanverðu Norðurlandi. Því þótti mikilvægt að endurtaka mælingarnar. Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að heimila þessar veiðar og þetta magn, en af því koma liðlega 90 þúsund tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu loðnustofnsins við Ísland.
Dagana 22.-29. janúar sl. var rs. Árni Friðriksson við mælingar á stærð stofnsins úti fyrir Austur- og Norðurlandi, ásamt Súlunni EA sem verið hefur til aðstoðar við kortlagningu loðnu á svæðinu. Loðna fannst allt frá svæðinu útaf Austfjörðum, norður um, allt að 18°V. Alls mældust 348 þúsund tonn tonn af hrygningarloðnu á þessu svæði. Að teknu tilliti til þessara mælinga er hrygningarstofn loðnu áætlaður um 530 þúsund tonn, en gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar.
Þessum fréttum gleðjast vafalaust margir.