Flottrollskipin stefna á loðnumiðin austur af Glettingi
Bræla hefur verið á loðnumiðunum austur af Glettingi, en nokkur skip eru á leiðinni þangað eftir að gefin var út kvóti til loðnuveiða. Meðal skipanna eru Vilhelm Þorsteinsson EA og Aðalsteinn Jónsson SU. Skip á flotttrolli mega ekki fara mikið sunnar til veiða samkvæmt reglugerð.
Víða eru frystihús tilbúinn til að vinna hluta loðnuaflans til manneldis og einnig eru verksmiðjurnar klárar til bræslu. Á Vopnafirði er langt komið með að ljúka við fullkomnustu fiskmjölsverksmiðja landsins sem er i eigu HB-Granda. Þar hafa um 60 manns verið að vinna við verkið sem hófst fyrir rúmu ári síðan en stefnt er að því að því ljúki 10. febrúar nk. Á vopnfirskan mælikvarða er þetta risastórt verkefni og ber vott um kjark og áræðni stjórnenda HB-Granda að ráðast í þessar framkvæmdir á Vopnafirði skömmu eftir hrun bankana á íslandi en fjárfestingar HB-Granda í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði nema alls rúmum þremur milljörðum króna á sl. fimm árum.