Loðnan komin upp í fjöru
Aðalsteinn Jónsson SU frá Eskifirði var í morgun búinn að hafa eitt kast með grunnnót vestan við Hrollaugseyjar, og það er mjög falleg og stór loðna. Byrjað er því að nota grunnnótina á þessum slóðum en reikna má með að loðnan fari suður og vestur með landinu næstu daga. Á þessum slóðum við Hrollaugseyjarnar eru einnig Hornafjarðarbátarnir Jóna Eðvalds SF og Ásgrímur Halldórsson SF. Fastlega má gera ráð fyrir fleiri skipum á svæðið ef veður helst skaplegt. Þar var í morgun léttskýjað, norðaustan 5 metrar og 1 stigs frost.
Norðar voru skip eins og Hákon EA, Þorsteinn ÞH og Sighvatur VE sem landaði í nótt 235 tonnum af gulldeplu eftir 4 daga á veiðum, og heldur áfram á gulldepluveiðum en snýr sér síðan væntanlega að loðnunni. Til fróðleiks má geta þess að oft hafa loðnuveiðar byrjað fyrr og kvótinn verið mun meiri. Í febrúarbyrjun árið 1999 var loðnuaflinn orðinn 360 þúsund tonn, eða nær þrefalt meiri en sá veiðikvóti sem nú hefur verið gefinn út og rétt aðeins er byrjað að veiða úr.