NV NE SV SE

25 norsk loðnuskip geta verið samtímis á veiðum innan íslensku lögsögunnar

Norski loðnuflotinn er nú kominn til loðnuveiða austur og suðaustur af Íslandi en fyrir helgi komu út nýjar reglugerðir um loðnuveiðar íslenskra og erlendra skipa á vetrarvertíð 2010. SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið á mánudagkvöldið framhjá straumi norskra skipa á leið inn í lögsögu Íslands. Voru þá 22 norsk loðnuskip komin á svæðið og reyndust  öll skipin vera á veiðileyfaslista. Loðnuskipunum er heimilt að hefja veiðar strax samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Eftirlit með veiðunum mun fara fram með eftirlitsflugvélinni Sif og varðskipi LHG sem mun kanna afla, veiðarfæri og fleira um borð.

Samkvæmt heimildum Landhelgisgæslunnar eru alls 79 norsk skip komin með leyfi til að veiða á þessari vertíð en 25 skip geta verið við veiðar á sama tíma en Norðmenn hafa samtals leyfi til að veiða 28.431 lest, íslensku skipin 90.779 lestir, Færeyingar 6500 og Grænlendingar 4290 lestir. Norðmenn hafa leyfi til að stunda veiðar frá 1.-15. febrúar 2010.