Vöxt, fóðurnýtingu og fjárhag lúðueldis má stórbæta með eldi í lágri seltu
Áhrif seltu á vöxt, fóðurnýtingu og blóðlífeðlisfræði hefur verið kannað hjá lúðu og sýna niðurstöður að vöxtur og fóðurnýting er 20% hærri hjá lúðu aldri á lágri seltu (hér 15 prómill) og að þessi áhrif eru óháð stærð fisksins. Í heildina benda niðurstöðurnar til þess að vöxt, fóðurnýtni og fjárhag eldisins megi stórbæta með því að ala lúðu við u.þ.b. 15 prómill seltu. Þetta er m.a. niðurstaða rannsóknaverkefnis sem lauk hjá AVS á síðasta ári en verkefnið nefndist ,,Samppnishæft lúðueldi í strandeldisstöðvum”. Verkefnið samanstóð af 5 ólíkum verkþáttum. Gagnvirk áhrif ljóslotu og lágrar seltu á vöxt, blóðlífeðlisfræði og fóðurnýtingu lúðuseiða voru könnuð. Bætt fóðurnýtni og aukinn vöxtur sást í þeim hópum sem aldir voru við stöðugt ljós, og að auki fundust vísbendingar um jákvæð langtímaáhrif stöðugs ljós á seiðastigi á vöxt á seinni stigum.
Lúðuseiði voru alin við mismunandi súrefnismettun (57% til 150%) í eldisvatni. Súrefnismettun hafði umtalsverð áhrif á vöxt lúðuseiðanna. Það er augljós ávinningur fyrir lúðueldisstöðvar af því að auka súrefnismettun úr 80% í 100%. Með því mun framleiðsla aukast um nærri 20% vegna meiri vaxtarhraða jafnframt því sem stærri hluti af framleiðslunni kemst í hærri verðflokk sem greiddur er fyrir stærri fisk. Framkvæmdar voru tvær tilraunir með mismunandi próteinmagn í fóðri (sama orkuinnihald)fyrir tvo stærðar flokka af lúðu. Niðurstöður tilraunanna og samanburður við áður birtar niðurstöður er að lágmarksþörf próteins til hámarks vaxtar í lúðu er 41% í þe fyrir 560 g lúðu og 35% í fóðri fyrir 970 g lúðu. Markaðs fóður fyrir lúðu hjá helstu fóðurframleiðendum (Skretting og Laxá) inniheldur í dag 47 – 49% prótein, þannig að þessar niðurstöður geta leitt til verulegrar lækkunar á hráefniskostnaði í framtíðinni.
Metin hafa verið hagræn áhrif af helstu niðurstöðum verkefnisins með því að hanna einfalt fjárhagslegt líkan. Notast var við raunverulegar framleiðslu- og kostnaðartölur frá Íslandi, Hjaltlandseyjum og Noregi. Í stuttu máli sýna niðurstöður líkansins að nærri má tvöfalda hagnað strandeldis. Þessar niðurstöður geta skipt sköpum um samkeppnishæfni lúðueldis í strandeldisstöðvum á Íslandi í náinni framtíð.