NV NE SV SE

Rekstrarhagnaður Marel árið 2009 24,8 milljónir evra sem er 5,7% af veltu

Marel birtir nú meginniðurstöður rekstrar, efnahags og sjóðstreymis en endurskoðaður ársreikningur 2009 verður lagður fyrir stjórn félagsins til staðfestingar þann 9. febrúar nk. Tekjur af kjarnastarfsemi árið 2009 námu 434,8 milljónum evra og jukust jafnt og þétt á árinu. Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila. Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu. Marel hélt áfram að styrkja samkeppnisstöðu sína á árinu með því að einbeita sér að samþættingu samstæðunnar og verulegum niðurskurði í útgjöldum, sem lækkaði kostnaðargrunn rekstursins um 25 milljónir evra.

Nettó vaxtaberandi skuldir hafa lækkað í 295 milljónir evra (2008: 379 milljónir evra) vegna sterks sjóðstreymis, velheppnaðra hlutafjárútboða og sölu eininga utan kjarnastarfsemi. Til að viðhalda tæknilegu forskoti sínu leggur Marel áfram ríka áherslu á rannsóknar- og þróunarstarf. Pantanabók styrktist eftir því sem leið á árið og er nú traustari og mun betri en fyrir ári síðan, sem mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu. Skerpt hefur verið á stefnu félagsins með sölu eininga utan kjarnastarfsemi.

Efnahagsreikningur Marel í upphafi árs 2010 er sterkur; nettó skuldir nema 295 milljónum evra samanborið við 379 milljónir evra í upphafi árs 2009. Sjóðstreymi frá rekstri fyrir vexti og skatta nam 75 milljónum evra fyrir árið 2009 og nýtt hlutafé nam 49 milljónum evra. Þar að auki hefur dregið úr vaxtakostnaði og gengisáhættu með lækkun skulda í íslenskri krónu, sem og myntbreytingu á láni úr íslenskri krónu yfir í evru (að upphæð 66 milljónum evra), sem er megintekjumynt félagsins. Pantanabók Marel er traust í upphafi árs 2010 og mun betri en í upphafi árs 2009. Það er aukin markaðsvirkni á öllum sviðum og fjöldi fyrirspurna eykst, einnig varðandi stærri verkefni.

,,Ár umbreytinga og niðurskurðar er að baki. Ég tel að fyrirtækið standa mun betur en það gerði fyrir ári. Við höfum náð góðum árangri í að skerpa á stefnu fyrirtækisins. Sameiningu Marel og Stork miðaði vel á seinni hluta árs. Jákvæðu áhrifin af sparnaði og kross-sölu verða veruleg og munu koma betur fram þegar líður á árið 2010. Arðsemi og sjóðstreymi hafa batnað. Við stöndum sterkari eftir að lækkað kostnaðargrunn fyrirtækisins án þess að draga úr fjárfestingu í rannsóknar- og þróunarvinnu. Auk þess hefur skuldsetning minnkað,” segir Theo Hoen, forstjóri.