NV NE SV SE

Kynningarfundur fyrir fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf

Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf fimmtudaginn 11. febrúar nk. kl. 14:00 í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35 í Reykjavík þar sem breytingar sem snerta fiskvinnslur verða til umfjöllunar. Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1. mars. nk. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en samkvæmt skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr 143/2009) er matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eður ei, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.

 

Dagskrá:

· Af hverju ný matvælalöggjöf?

· Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?

· Nýjar áherslur varðandi fisk og fiskafurðir?

· Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?

Fulltrúa frá Matvælastofnun sjá um kynninguna og svara fyrirspurnum.

Kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki og fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf verður einnig haldinn á Akureyri mánudaginn 22. febrúar kl.14:30 í fundarsalnum Ánni á fjórðu hæð Alþýðuhússins að Skipagötu 14. Þar verða einnig tekin fyrir málefni sem snerta fiskiðnaðinn og eru aðilar í fiskiðnaði á Norðurlandi hvattir til að mæta.