NV NE SV SE

Mikil rækjuveiði á Arnarfirði og laxeldi í farvatninu

Rækjuveiðum í Arnarfirði fer senn að ljúka en þeir bátar sem fengu úthlutað kvóta þar fyrir yfirstandandi fiskveiðiár eru allir búnir með kvótann nema Brynjar BA sem reyndar var með langmesta kvótann, eða 126 tonn. Um 40 tonn eru eftir óveidd af kvótanum, að sögn Björns Magnússonar skipstjóra. Samkvæmt fréttum á aflafréttir.com hefur Brynjar BA komið með rúm 40 tonn af rækju að landi í 18 róðrum. Ekki hefur verið unnin rækja á Bíldudal í mörg ár og er öllum aflanum ekið burt til vinnslu.

Nýlega var haldinn kynningarfundur á Bíldudal með bæjarstjórn Vesturbyggðar og hagsmunaaðilum um áform Arnarlax ehf. um uppbyggingu á laxeldi og fullvinnslu laxaafurða í neytendapakkningar á Bíldudal. Arnarlax ehf. er nýtt félag með aðsetur á Bíldudal og að því standa brottfluttir Arnfirðingar með Matthias Garðarsson í forsvari en hann á og rekur laxeldisfyrirtækið Salmus AS í Noregi með um 8.000 tonna ársframleiðslu. Þessir aðilar hafa undanfarinn tvö ár verið að safna gögnum og skoðað hvort laxeldi í Arnarfirði geti verið áhugaverður kostur. Arnarlax ehf. stefnir á eldi á 3-4000 tonnum á þremur stöðum í firðinum og fullvinnslu á afurðum á Bíldudal sem mun skapa um 60-70 störf. Næstu skref eru að klára leyfisumsóknir og hefja nýjar rannsóknir og í framhaldi af því tilraunareldi, sem mun verða í höndum norskra sérfræðinga og gera menn ráð fyrir að fjármögnun komi að öllu eða mestu æeiti frá norskum fjárfestum. Gerir Arnarlax ráð fyrir, að framleiðsla geti hafist á Bíldudal eftir 4 ár en það er markmið félagsins að fullvinna hráefnið í neytendapakkningar á Bíldudal.

Mikil óánægja hefur skapast meðal hagsmunaaðila í Arnarfirði vegna stjórnlausra leyfisveitinga í firðinum og það kapphlaup sem virðist vera í gangi. Á fundi sem hagsmunaaðilarnir héldu nýlega var samin ályktun þar sem krafist var þess að öll bráðabirðaleyfi, þ.e 200 tonna leyfi, verði afturkölluð því staðsetningar þessara leyfa eru mörg á hefðbundinni veiðislóð í firðinum. Að öðrum kosti verði farið fram á skaðabætur. Aldrei hefur verið haft samband við hagsmunaaðila varðandi staðsetningu þegar úthlutað er leyfum. Hagsmunaaðilar hafi einnig undirritað stuðningsyfirlýsingu við áform Arnarlax ehf. enda hefur fyrirtækið frá upphafi unnið  í sátt og samvinnu við heimaaðila.