Ice-West framleiðir hágæða þorskalifur á Evrópumarkað
Mikil uppbygging hefur verið hjá IceWest hf. í Grindavík sem framleiðir niðursoðna, reykta þorsaklifur. Hún hófst vorið 2007 á grunni eldra fyrirtækis með umfangsmiklum endurbótum á húsnæði þess og fjárfestingu í vinnslulínu. Þessi uppbygging er hugarfóstur forsvarsmanna fyrirtækisins en smíðuð og hönnuð af Martak, öðru grindvísku fyrirtæki. Frá þessu er sagt á vf.is
Ice-West framleiðir hágæða þorskalifur fyrir stóran dreifingaraðila í Danmörku sem dreifir vörunni til Evrópu, mest til Frakklands að sögn Birkis Kristjánssonar, verskmiðjustjóra. Fyrirtækið þreifar einng fyrir sér á markaði vestanhafs og segir Birkir viðbröð þar lofa góðu. Framleiðslan á síðasta ári nam þremur milljónum dósa. Að sögn Birkis er ekki áætlað að auka mikið við framleiðsluna að óbreyttu. Stærð fyrirtækisins sé hagkvæm og veltan ágæt.