Fyrsti loðnufarmurinn til Vopnafjarðar
Fyrstu loðnunni á yfirstandandi vertíð var landað á Vopnafirði á fimmtudagskvöldið. Faxi RE landaði fullfermi af góðri loðnu en Lundey var á sama tíma að landa um 1.300 tonnum á Akranesi og Ingunn var á loðnumiðunum. Með því sem verið er að landa núna er búið að landa 6.500 tonnum af 20.500 tonna heildarkvóta HB-Granda.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarfisks HB-Granda, hafa verið unnin hrogn úr öllum förmum og hefur nýtingin verið góð. Veiðin hefur verið í Faxaflóa og fékk Lundey síðasta aflann um 7 sml. suður af Malarifi. Það hefur verið fremur erfitt að eiga við veiðina en töluverður vindur hefur verið í flóanum og loðnan hefur yfirleitt haldið sig á of miklu dýpi.