Veiðarfæralaust skip landar mestu af þorski á Vestfjörðum!
Það sem af er yfirstandandi fiskveiðiári sem hófst 1. september 2009 hefur ekkert skip landað jafn miklu af þorski á Vestfjörðum og brunnbáturinn Papey, eða 1044 tonnum. Það sem greinir þetta „fengsæla" skip frá öðrum sem landa á Vestfjörðum er sú staðreynd að það er veiðarfæralaust með öllu. Allur afli þess er nefnilega sóttur í þorskeldiskvíar Hraðfrystihúsins - Gunnvarar hf. Aflanum hefur verið landað lifandi úr brunn bátsins í Súðavík þar sem hann er slægður og síðan unninn í landvinnslu félagsins í Hnífsdal og á Ísafirði. Papey gegnir mikilvægu hlutverki í þorskeldi Hraðfrystihúsins – Gunnvarar, m.a.í flokkun og flutningi á smáum og stórum fiski svo og í allri slátrun. Venjulega er fiskurinn sóttur í kvíarnar daginn fyrir slátrun og morguninn eftir er honum dælt lifandi beint inn í aðgerðaraðstöðu fyrirtækisins í Súðavík.
Hraðfrystihúsið – Gunnvör hafði verið með brunnbátinn Papey á leigu frá HB-Granda hf. í nokkur ár áður en ráðist var í að kaupa hann í fyrra. Gott samstarf hefur verið á milli þessara fyrirtækja um árabil. Þannig hefur Papey annast flutning seiða á milli landshluta, bæði í Ísafjarðardjúpi og á Berufirði. Þá fór Papey í haust þrjár ferðir til Tálknafjarðar og sótti regnbogasilung til útsetningar í sjókvíar í Dýrafirði en þar stundar Dýrfiskur eldi á regnbogasilungi. Fiskeldi er því mikið og vaxandi á Vestfjörðum.