NV NE SV SE

Vorrallið hafið hjá Hafrannsóknastofnuninni

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst um síðustu helgi og stendur yfir í þrjár vikur. Verkefnið er kannski betur þekkt sem vorrall. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson. Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20-500 m dýpi, eða á svipuðum slóðum og undanfarin ár til að fá samanburð.

Vorrallið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu helstu fisktegunda við landið, og hitastigi sjávar. Ennfremur er safnað sýnum vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af reyndum skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Undanfarin tvö ár hafa einnig verið teknar færanlegar skipstjórastöðvar í útköntum fyrir norðvestan og norðaustan land. Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og fyrstu niðurstöður verða kynntar í apríl.