Félag skipstjórnarmanna vann sigur á ný í Sólbaksmálinu
Þann 24. febrúar sl. var kveðinn upp í annað sinn dómur í svokölluðu Sólbaksmáli sem Félag skipstjórnarmanna stóð að gegn Brimi hf. og féll dómurinn, rétt eins og í fyrra tilvikinu Félagi skipstjórnarmanna í hag. Tilgangur FS var að fá í eitt skipti fyrir öll úr því skorið fyrir dómi hvort skipstjórnarmenn gætu þegið laun og starfað eftir kjarasamningum aðildarfélaga FFSÍ, án þess að því fylgdu neinar skuldbindingar af þeirra hálfu. Fyrri dómurinn var birtur þann 29. janúar 2008 en þeim dómi var áfrýjað til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá vegna formgalla.
Á heimasíðu Félags skipstjórnarmanna segir að ástæðan sé sú að rétturinn taldi að rangt væri að hálfu FS að sækja málið einungis á hendur Brimi. Viðkomandi skipstjórnarmanni/mönnum ætti að gefast kostur á að halda uppi vörnum í málinu og þar með bæri að sækja málið á þeim forsendum að kröfur FS beindust sameiginlega að útgerð og viðkomandi skipstjórnarmanni /mönnum. Í ljósi þessarar niðurstöðu var ákveðið að sækja málið á ný út frá forsendum Hæstaréttar og er sá dómur sem féll nú í lok febrúar því niðurstaða úr ömurlegri atburðarrás sem upphófst fyrir heilum sex árum eða árið 2004. Að áliti Félags skipstjórnarmanna er hugsanlegt að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar á ný, en vonandi verði hér látið staðar numið og endir þar með bundinn á alvarlegustu aðför að íslenskum stéttarfélögum á síðari árum.