NV NE SV SE

Íslandssaga á Suðureyri er leiðandi í útflutningi á ferskum afurðum frá Vestfjörðum

Fiskvinnslan Íslandssaga á Suðureyri framleiðir bæði ferskar og frystar afurðir til útflutnings. Mest er flutt til Bandaríkjanna, eða um 60%. Fyrirtækið hefur verið leiðandi í útflutningi á ferskum fiski frá Vestfjörðum. Meginafurð Fiskvinnslunnar Íslandssögu er ýsa og eru framleidd um 1500 tonn af afurðum úr ýsu á ársgrundvelli. Stærstur hluti ýsuframleiðslunnar fer á markað í Bretlandiog eru það roðlaus og beinlaus flök, einnig fer nokkur hluti á markað í Bandaríkjunum sem fryst vara. Fiskvinnslan Íslandssaga framleiðir um 200 tonn af steinbítsafurðum á ári mest er um að ræða lausfryst og fersk heil flök til. Meginhluti framleiðslunnar fer á Frakklands -og Þýskalandsmarkað. Íslandssaga hf framleiðir um 500 tonn af þorskafurðum á ári, stærstur hluti framleiðslunnar eru ferskir hnakkar fyrir Bretlandsmarkað.

Í Fiskvinnslunni Íslandssögu hf er lögð rík áhersla á gæðaeftirlit, sýni eru tekin af hráefni fyrir vinnslu og um borð í viðskiptabátum er meðhöndlun metin og skýrsla afhent sjómönnum. Stöðugt eftirlit er með snyrtingu flaka í fiskvinnslunni og er notast við gæða- og eftirlitskerfi HACCP. Íslandssaga leggur metnað sinn í að viðhalda húsnæði og búnaði í samræmi við reglugerðir og kröfur matvælamarkaðarins. Gæðastjóri er Guðrún Oddný Schmidt og ber hún ábyrgð á eftirliti framleiðslunnar ásamt yfirverkstjóra. Vinnsluferlið er í stöðugri endurskoðun og er stöðugt unnið að því að gera það markvissara og einfaldara.

 

Helstu söluaðilar á frystum afurðum eru Icelandic USA, Marz Seafood og Sæmark

 

Íslandssaga hefur á síðustu árum stöðugt verið að efla vinnslu á ferskum flökum sem flutt eru með flugi á erlenda markaði og kemur þ.a.l. á borð neytandans án þess að hafa verið frystur. Stærsti hluti ferskfiskframleiðslunnar er unnin úr ýsui eða um 80%. 20% eru þorskur en allur ferskur fiskur er framleiddur roðlaus og beinlaus og fer að stærstum hluta inn á Bretlandsmarkað. Langstærsti hluti ferskra