NV NE SV SE

Hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi hækkar milli ára

Hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi landsmanna nam 42,42% á síðasta ári. Þetta hlutfall er 5,7 prósentustigum hærra en árið 2008 er það var 36,75% og ívið hærra en árið 2007 er það var 41,82%. Hlutfall sjávarútvegs af vergri landsframleiðslu var 13,76%  og hefur ekki verið hærra frá árinu 2002. 

Þótt hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi sé enn verulegt hefur það lækkað umtalsvert undanfarin hálfan annan áratug. Þannig var það 77,7% árið 1994 en var komið niður í um 60% tíu árum síðar. Til samanburðar má nefna að hlutfall sjávarútvegs af vergri landsframleiðslu var 19,87% árið 1994 en var 13,69% árið 2003.