NV NE SV SE

Sjávarútvegsráðherra benti á mikilvægi bleikjueldis á Búnaðarþingi

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra benti á þá staðreynd á Búnaðarþingi að fiskeldi hafi verið í talsverðri sókn að undanförnu. Bleikjan sé okkar verðmætasti eldisfiskur og á síðasta ári var útflutningur eldisbleikju um 3.000 tonn og söluverðmætið um 2.000 milljónir króna en það sé um 70% af heildarútflutningsverðmætum eldisfisks. Gert er ráð fyrir að framleiðsla á bleikju aukist á næstu árum og framleiðslan verði orðin um 5.000 tonn árið 2015. Bleikjueldið er gott dæmi um vel heppnað þrónarstarf, þar sem kynbætur og rannsóknir hafa skipt sköpun varðandi framgang greinarinnar. Bleikjukynbótastarfið við Hólaskóla er forsenda þess að framþróun bleikjueldisins sé tryggð.

 Í framhaldi sagði sjávarútvegsráðherra m.a.: ,,Hlunnindi í ám og vötnum hafa ávallt verið íslenskum bændum mikilvæg. Þau hafa mikla þýðingu núna þegar nýta þarf alla möguleika sem gefast með sjálfbærum hætti. Veiðimálastofnun hefur í áranna rás unnið að þessu verkefni með góðum árangri. Mikill og vaxandi áhugi er á kræklingarækt og hefur fyrirtækið Norðurskel í Hrísey ræktað krækling bæði fyrir innanlandsmarkað og til útflutnings. Í undirbúningi í ráðuneytinu er ný löggjöf um skelrækt og vona ég að hægt verði að mæla fyrir henni á þessu þingi.

Ekki má gleyma því að nýting strandhlunninda og strandsvæða hefur löngum reynst mörgum bóndanum góð búbót. Dúnn, grásleppa ofl. hafa lengi verið fastir liðir í tekjum strandbænda og ekki veit ég betur en ýmsir þeirra hafi tekið þátt í hinum margrómuðu strandveiðum á síðastliðnu ári og hyggist gera það áfram. Strandveiðarnar munu því reynast ómetanlegur stuðningur við tiltekna bændur sem búa við sjóinn í kringum landið.”