Hluti afla báts við grásleppuveiðar reiknast ekki til aflamarks
Í tilefni þess að grásleppuvertíðin er að hefjast bendir Fiskistofa á að grásleppuveiðimenn geta nýtt sér heimild skv. 9. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða til þess að ákveða að hluti af afla skipsins reiknist ekki til aflamarks þess og er hér átt við svokallaðan VS-afla. Samkvæmt umræddri reglu skal sá hluti sem þannig reiknast ekki til aflamarks þó aldrei nema meira en 5% af botnfiskafla sem hlutaðeigandi skip veiðir á hverju fiskveiðiári. Heimildin er bundin þeim skilyrðum að aflanum sé haldið aðskyldum frá öðrum afla og hann veginn sérstaklega og að aflinn sé seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði. Til að reikna út viðmið vegna grásleppuhrogna þarf að byrja á því að reikna þyngd grásleppu út frá þyngd hrognanna, en það er gert með því að deila í þunga hrognanna með 0,3.
5% af þeim þunga (hrogn/0,3) er það magn af óslægðum fiski sem landa má sem VS-afla. Sem dæmi má nefna aðila sem veitt hefur 600 kg af grásleppuhrognum og vigtar og skráir þau á hafnarvog.
600 kg hrogn / 0,3 = 2000 kg heil grásleppa. (óslægð)
2000 kg heil grásleppa x 0,05 = 100 kg (óslægður fiskur).
Til einföldunar má deila í magn grásleppuhrogna með 6 og þá fæst við það sama niðurstaða.
Uppgjör VS-afla er í lok hvers fiskveiðiárs þ.e. ekki er gert upp m.v. einstaka veiðiferð.