NV NE SV SE

Hugað að smíði nýrrar Eyjaferju

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, minntist þessi í ræðu sinni við fyrstu komu Herjólfs til Landeyjarhafnar að smíði nýs Herjólfs til að sigla í Landeyjahöfn var boðin út 2008. Í byrjun október 2008 stóð yfir loka sprettur í samn ingaviðræðum við þýska skipa smíðastöð. „Þá breyttust allar forsendur og ríkisstjórnin varð og gat ekki annað en hætt við verkið og við sluppum frá því án skaða. Af þessu sést að allt var reynt hvað varðar nýjan Herjólf árið 2008,“ sagði samgönguráðherra.

 

Samgönguráðherra segir að samt þurfi að huga að smíði nýrrar ferju fyrr eða síðar sem mun leysa Herjólf af. Ráðherra hefur því ákveðið skipa nýjan stýrihóp til undirbúnings fyrir það verk og hefur Eyjapeyinn og alþingismaðurinn Róbert Marshall verið skipaður til þess leiða hópinn sem mun hefja störf í haust þegar fullskipaður hefur verið í hann.