Fyrsta og eina vestfirska makríllöndunin og strandveiðar hafnar
Togarinn Júlíus Geirmundsson landaði fullfermi af makríl um verslunarmannahelgina. Þetta er í fyrsta skipti sem ísfirskt skip kemur með makríl að landi, en aflinn var 220 tonn. Allur makrílkvóti útgerðar skipsins, Gunnvarar, hausaður og frystur til útflutnings, náðist í þessari einu ferð enda hafa ísfirskar útgerðir ekki verið að gera sig gildar á uppsjávarfiskaveiðum.
Strandveiðar hófust að nýju á miðnætti aðfararnótt 3. ágúst sl. Að sögn Landhelgisgæslunnar eru nú um sjö hundruð bátar á sjó og er talið að milli fjögur hundruð og fimm hundruð þeirra séu strandveiðibátar. Rúmlega sjö hundruð bátar hafa leyfi til slíkra veiða. Pétur Sigurðsson, varaformaður Landssambands smábátaeigenda segir bagalegt hve kvótinn sé lítill í ágúst en hann er helmingi minni en síðustu mánuði. Lítið sé til skiptanna og veiðarnar klárist á þremur til fjórum dögum á norðursvæðinu. Hann vill að smábátasjómenn fái að veiða fleiri tegundir; til dæmis ufsa og ýsu.