Kristina EA-410 á Íslandsmið á fer á síld og makríl
Samherjaskipið Kristina EA-410, smíðuð árið 1994, er 105 metrar að lengd og 20 metra breitt skip. Skipið er 7.805 brúttótonn að stærð, stærsta skip íslenska fiskiskipaflotans. Það kom til heimahafnar, Akureyri, í morgun eftir vikulanga siglingu frá Las Palmas. Skipið mun á næstu dögum halda til síldar- og makrílveiða hér við land.
Samherji hf. eignaðist skipið árið 2007, keypti það af HB-Granda en þá hét það Engey RE-1. Það hefur það að mestu verið í leigu síðan, aðallega við veiðar úti fyrir ströndum Afríku. Skipstjóri á Kristinu EA er Arngrímur Brynjólfsson og í áhöfn eru 35 menn. Aflinn verður unninn um borð en skipið er búið öflugum búnaði fyrir frystingu á aflanum og einnig er fiskimjölsverksmiðja í skipinu.