Þingmaður segir lög um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi vera hriplek
Björn Valur Gíslason þingmaður VG í Norðausturkjördæmi og annar tveggja fulltrúa Vinstri grænna í sjávarútvegsnefnd segir lög um erlenda fjárfestingu í íslenskum sjávarútvegi hriplek og þarfnast endurskoðunar. Hann sakar fyrri stjórnvöld um að hafa sýnt erlendum fjárfestingum í greininni andvaraleysi. Björn Valur Gíslason segir fulla ástæðu til að kanna hvort erlendir fjárfestar hafi eignast hlut í fleiri sjávarútvegsfyrirtækjum hér á landi.
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur að beiðni Jóns Bjarnasonar landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, falið nefnd um erlenda fjárfestingu að kanna hvort það samræmist lögum um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi, að kínverskir fjárfestar hafi eignast hlut í sjávarútvegsfyrirtækinu Stormur Seafood. Þá á nefndin jafnframt að kortleggja erlent eignarhald á öðrum íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.