NV NE SV SE

Vopnfirðingar vilja ekki hætta olíuleit á Drekasvæðinu

Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps telur enga ástæðu til að blása af olíuleit á Drekasvæðinu, undan norðausturströnd Íslands við 200 mílna mörkin. Hann tekur engu að síður undir með iðnaðarráðherra, að skoða skuli framhaldið vel í kjölfar olíuslyssins á Mexíkóflóa. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði á RUV að áhuginn á því að gefa út rannsóknarleyfi fyrir olíuleit á Drekasvæðinu hefði minnkað í kjölfar olíuslyssins mikla við Mexíkóflóa. Rannsóknarleyfi á Drekasvæðinu voru boðin út í fyrra og til hefur staðið að hafa annað útboð á næsta ári. Katrín sagði að ekki væri búið að taka ákvörðun í ríkisstjórninni varðandi frestun olíuleitar á Drekasvæðinu, en hún sem iðnaðarráðherra gæti ekki farið af stað með þetta án þess að hafa skoðað þetta afar vel áður.

Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, tekur undir með ráðherranum að eðlilegt sé að staldra við þegar slíkt stórslys verður. Engin ástæða sé hinsvegar til þess að blása af olíuleit á Drekasvæðinu. Ekki sé gert ráð fyrir að hefja þar olíuvinnslu fyrr en 10-12 árum eftir að leitarferlið hæfist. Þorsteinn telur ekki mikla áhættu felast í því að bjóða út olíuleit á Drekasvæðinu og hann hefur ekki trú á því að iðnaðarráðherra muni stöðva fyrirhugað útboð.