NV NE SV SE

Hvalveiðar hafa gengið mjög vel og skapað umtalsverða vinnu

Hvalveiðarnar hafa gengið mjög vel í sumar og hafa veiðst 89 hvalir til þessa sem er heldur meira en á sama tíma í fyrra. Gott veður hefur verið lengst af tímabilsins svo gefið hefur til veiðanna mestan hluta veiðitímans en hvalveiðivertíðin hófst 10 dögum síðar en í fyrra. Það er því nokkuð líf í Hvalstöðinni flesta daga um þessar mundir.