NV NE SV SE

Naprir vindar blása um sjávarútvegsráðherrann

Ungir jafnaðarmenn vilja Jón Bjarnason burt úr ríkisstjórninni hið fyrsta. Segja þeir að ráðherrann sé ófær um að starfa í ríkisstjórninni, hann starfi gegn stjórnarsáttmálanum, bæði með rangfærslum um aðildarsamninga við Evrópusambandið og andstöðu við hagræðingu með fækkun ráðuneyta.

 

Yfirlýsing þeirra er svohljóðandi:

„Ungir Jafnaðarmenn bregðast ókvæða við þeim hvatvísu ummælum Jóns Bjarnasonar Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra þess efnis að íslensk stjórnvöld segi ósatt frá því hvernig samningaferli við Evrópusambandið sé háttað og að ríkisstjórninni beri að draga umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka.

Ítrekuð dæmi eru til um að Jón Bjarnason sé ófær um að starfa jafnfætis ríkisstjórninni og beinlínis þvert á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna, þá má nefna andstöðu hans við uppstokkun innan stjórnarráðsins og tregleika við eflingu nýliðunar og samkeppni í landbúnaðargeiranum. Í ljósi þess krefjast Ungir jafnaðarmenn tafarlausrar afsagnar Jóns Bjarnasonar af stóli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.”