NV NE SV SE

Leiðangur til Grænlands til að skoða fiski- og hvalaslóðir

Skonnortan Hildur sigldi inn í Húsavíkurhöfn í dag eftir afar vel heppnaðan leiðangur til Grænlands. Þátttakendur í ferðinni voru skonnortuáhafnir Norðursiglingar og voru sumir með allan tíman en öðrum var skipt út. Leiðangursstjóri var Heimir Harðarson. Dagana í Grænlandi var siglt um Scoresbysund, lengsta fjörð í heimi. Norðursiglingarmenn eru að skoða möguleika á verkefnum í ferðaþjónustu á þessum slóðum.

,,Það lítið sem ekkert í gangi þarna í ferðaþjónustu en Grænlendingar hafa áhuga á að efla þá starfsemi og tóku okkur vel. Það er aðeins eitt lítið þorp fremst í sundinu, en að öðru leyti er svæðið nánast óbyggt og náttúrufegurð með ólíkindum,” sagði Hörður Sigurbjarnarson.