Tuttugu og tveir sóttu um stöðu fiskistofustjóra
Þann 27. ágúst sl. rann út frestur til að skila umsókn um embætti fiskistofustjóra, en fráfarandi fiskistofustjóri, Árni Múli Jónasson, hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akranesi. Embættið er greinilega eftirsóknarvert því 22 sóttust eftir því.
Umsækjendur voru Aðalsteinn Þorsteinsson, Dagmar Sigurðardóttir, Davíð Egilson, Eyþór Björnsson, Gísli Rúnar Gíslason, Grétar Mar Jónsson, Guðmundur Einar Jónsson, Gylfi Ástbjartsson, Halldór Ó. Zoëga, Haukur Nikulásson, Ingólfur Sveinsson, Jón Örn Stefánsson, Pétur Bjarnason, Sævar Ásgeirsson, Valbjörn Steingrímsson, Valtýr Hreiðarsson, Viðar Ólason, Vilhjálmur Wium, Þorsteinn Þorsteinsson, Þórður Már Jónsson, Þórður Heimir Sveinsson og Þórhallur Ottesen. Ráðið verður í stöðuna innan tíðar.