NV NE SV SE

Aflaverðmæti hefur aukist um 32,4% milli ára fyrstu fimm mánuði ársins

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanborið við 43,1 milljarð króna á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða króna, eða 32,4% á milli ára. Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 43,7 milljarðar króna og jókst um 29,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 33,8 milljörðum króna. Verðmæti þorskafla var um 22,2 milljarðar króna og jókst um 31,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum króna og jókst um 11,8%, en verðmæti karfaaflans nam um 5,8 milljörðum króna, sem er 24,2% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 31% milli ára og nam rúmum 2,7 milljarði króna fyrstu fimm mánuði ársins.

 

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 4,1 milljarði króna í janúar til maí 2010, sem er 9,7% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 67,4% milli ára og nam rúmum 8,5 milljörðum króna.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 24,5 milljörðum króna og jókst um 40,4% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 18 milljarðar króna, sem er 47,1% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 47,5% milli ára og var um 9,5 milljarðar króna.