Leyfilegur þorskafli samkvæmt aflahlutdeild er 147 þúsund tonn á nýbyrjuðu fiskveiðiári
Nýtt fiskveiðiár hefst í dag, 1. september og stendur til 31. ágúst 2011. Leyfilegur heldarafli í óslægðum þorski er 160 þúsund tonn en þar af eru 147.328 tonnum skipt samkvæmt aflahlutdeild. 12.672 tonnum er ráðstafað í sérstakar úthlutanir, eða tæpum 8% af heildaraflamarki. Þessar sérstöku úthlutanir eru 1.545 tonn í skel- og rækjubætur, 2.952 tonn í byggðakvóta, 3.375 tonn í línuívilnun og 4.800 tonn í strandveiðar. Heildaraflamark í ýsu er 50 þúsund tonn en 3.500 tonn fara í sérúthlutanir en um 46.500 tonnum er skipt samkvæmt aflahlutdeild. Heildaraflamark í ufsa er 50 þúsund tonn en þar af fara tæp 1.800 tonn í sérúthlutanir, þar af 1.200 tonn til strandveiða.
Steinbítskvótinn er 12 þúsund tonn. Þar af fara 1.237 tonn í sérúthlutanir. Rúmum 10% af heildaraflamarki í steinbít er þannig ráðstafað með sérúthlutun. Línuívilnun í steinbít er aukin milli fiskveiðiára úr 700 tonnum í 900 tonn.
Um 8% af leyfilegum heildarafla í þorski á næsta fiskveiðiári koma ekki til skipta samkvæmt aflahlutdeild. Verður þeim ráðstafað með sérúthlutun. Munar þar mestu um 4.800 tonn af þorski sem tekin hafa verið frá til strandveiða. Í heild verður um 19 þúsund tonnum af botnfiski ráðstafað í sérúthlutun, svo sem í byggðakvóta, línuívilnun, strandveiðar og bætur til skel- og rækjuveiðimanna.
Nú er strandveiðiafli í fyrsta sinn dreginn frá heildaraflamarki en heildaraflamarki í flestum tegundum er skipt samkvæmt aflahlutdeild, þ.e. til þeirra sem hafa kvótann. Sérúthlutanir eru hins vegar í fjórum fisktegundum, þorski, ýsu, ufsa og steinbít.