NV NE SV SE

Eyfirsk matarmenning til sýnis á MATUR-INN byrjun októbermánaðar

Sýningin MATUR-INN 2011 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 1. og 2. október nk. Sýningin er vettvangur norðlenskrar matarmenningar í víðri merkingu allt frá frumframleiðendum matvæla til veitinga- og ferðaþjónustufyrirtækja. Sýningin er haldin á tveggja ára fresti og verður aðgangur að henni ókeypis. Síðasta sýning var haldin haustið 2009 og sóttu hana á bilinu 12-14 þúsund gestir. Mikið er lagt upp úr því að sýningin verði fjölbreytt og í boði verður sýningarsvæði fyrir fyrirtæki og félagasamtök auk markaðssvæðis sem kjörið er til þess að selja haustuppskeruna eða annað sem tengist mat og matarmenningu. Á sýningarsvæðinu verða einnig skemmtilegar keppnir og uppákomur sem gestir geta fylgst með.

Fáir viðburðir eru fjölsóttari á Norðurlandi og laðar sýningin að sér gesti víða af landinu. MATUR-INN 2011 er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og endurspeglar sýningin norðlenska matarmenningu, hvort heldur er framleiðsla, veitingastarfsemi, matartengd ferðaþjónusta eða verslun. Á markaðstorgi verður aðstaða við söluborð en að öðru leyti sjá aðilar sjálfir um sína aðstöðu.